Björn Hjaltason bloggar aftur eftir langt hlé

11.7.07

Um veðraðar eyðimerkur.

Ég er að verða eldri fljótlega, nánar tiltekið þá verð ég eldri í fyrramálið en ég er núna. Ekki að það sé neitt slæmt. Ég sé engan mun á kollvikunum dag frá degi, það þarf lengri tíma til. Þess vegna forðast ég það að of langur tími líði milli þess sem ég skoða þetta. Ég dekstra við hárið á mér á morgnana, klappa því fallega, tala við það, reyni að gefa því sjálfsöryggi með jákvæðri gagnrýni. Þessi barátta er hinsvegar erfið því ég er ekki fyrr búinn að lýsa aðdáun minni á striti og þjáningum þeirra hára sem eftir eru á sínum stað en að hluti þeirra flyst suður á hlýrri og rakari staði.

21.3.07

Um pikköplínur

Gleðilegt ár allir landsmenn. Ég ætlaði bara að láta alla vita að ég var að skora á sjálfan mig að nota eftirfarandi pikköplínur.

  1. Hæ, Ég heiti Björn en vinir mínir kalla mig helgarpabba.
  2. Hæ, Ég heiti Björn og varð að tala við þig því manneskja með þitt útlit hlýtur að vera með magnaðan persónuleika.

25.9.06

Um leyndarmál

Ég er að vísu frekar seinn með þessa umræðu en ég er á því að leyniþjónusta Björns Bjarnasonar er snilldar dæmi að mínu mati. Þetta er akkurat það sem mig hefur alltaf dreymt um að vinna við. Safna upplýsingum um útlendinga og íslendinga með það að markmiði að reyna að hefta skipulagða glæpastarfsemi og fíkniefnainnflutning. Ég sé mig alveg fyrir mig í rykfrakka í komusalnum í Keflavík að spyrja útlendinga hinnar gríðarlegu mikilvægu spurningar: "How do you like iceland" og skrifa svarið síðan í leyniskjal hjá leyniþjónustunni.

23.1.06

Um átök.

Árshátíð Bifrastar, betur þekkt sem "Bifró" er handan við hornið, réttara sagt eftir um það bil mánuð. Annar hver maður í átaki eftir jólin til þess að passa í árshátíðardressið. Er ég skrýtinn að gera ekki þá kröfu á líkama minn að passa í fötin, heldur frekar geri ég kröfu á fötin að passa á líkamann?

5.1.06

Um endurkomu mína til eistlands.

Kom aftur til Eistlands í fyrradag. Seint um kvöld, flugleiðavélinni út seinkaði þannig að ég þurfti að hlaupa enda á milli á kastrupflugvelli til þess að ná vélinni áfram til eistlands. Ég hleyp greinilega hraðar en taskan mín því að hún dólaði sér bara til Eistlands með næsta flugi og trítlaði inn í anddyri hér seinnipartinn í gær og leit út eins og hún hefði bara haft gott af smá afslöppun í Köben. Annars er lítið að frétta, dagurinn í gær fór í próflærdóm. Dagurinn í dag fór í próf og ritgerðarsmíð. Hitti Ellu og hundinn hennar samt í gærkvöldi, það var bara fínt, afslappað og gott. Eitt próf og ritgerð eftir. STUÐ!

27.12.05

Um jólin

Gleðileg jól allir. Kom heim á Þorláksmessu um kvöldið. Ferðataskan mín kom samt ekki fyrr en á jóladag. Sem betur fer voru jólagjafirnar flestar í handfarangrinum þannig að enginn stór skaði. Jólin voru haldin hátíðleg hérna heima hjá múttu, systir mín, mágur og allir 3 gríslingarnir viðstaddir. Ofát í 3 daga og núna loksins smá afslöppun.

22.12.05

Um heimferð og tískusýningu.

Ég er á leiðinni heim. Jamm, það verður lagt í hann á morgun kl. 18:10 að staðartíma og lent á klakanum klukkan 22:20 eftir rúmlega 6 tíma ferðalag. Annars er lítið að frétta, skilaði ritgerðunum á mánudaginn, búinn að vera lesa og slæpast síðan þá, kaupa jólagjafir. Fór á tískusýningu hönnunarnema í Euroulikool þar sem Ella var að sýna gallabuxur sem hún hannaði og saumaði. Kom mér á óvart hvað þetta var flott hjá sumum og slappt hjá öðrum. Svona sýningartíska er nú ekki uppfull af praktískum fötum, megnið af þessu leit út fyrir að vera fantalega óþægilegt að klæðast og sumar flíkurnar virtust vera svo viðkvæmar fyrir hnjaski að þær myndu detta í sundur ef þær yrðu látnar þola þyngdarafl jarðar í tvo daga til viðbótar. Ég meina, þema sýningarinnar var "denim" og allir að gera eitthvað úr gallaefni. Gallabuxur td. eru vinsælar að hluta til vegna endingarinnar, gallaefni er sterkt, því fannst mér sniðugt að sjá einar gallabuxur þar hnén og rassinn á buxunum voru úr einhverju blúnduefni. Álíka gáfulegt að nota blúnduefni á slitstaðina og að nota síldarnót sem flugnanet. Buxurnar hennar Ellu voru samt flottar en ég vil meina að enginn faðir á nokkurntímann eftir að kaupa þetta snið á táningsdóttur sína þar sem buxurnar sátu svo lágt og voru svo þröngar að hefði sýningarstúlkan verið í þveng þá hefði megnið af honum verið sjáanlegur. Síðan var farið á rússapöbb með einhverjum vinum hennar og þaðan áfram á ónefndan stað þar sem var meira næði.

Annars er ég búinn að finna til allt sem ég ætla að taka með mér heim á klakann á morgun, á bara eftir að pakka því öllu niður. Það verður ljúft að komast aftur heim en ég á eftir að sakna stemmningarinnar hér og fólksins. Ef einhver vill hitta mig í jólafríinu þá verður hægt að ná í mig í gemsanum gamla, 661-8500.

Kær jólakveðja og sjáumst fljótlega,
Bjössi