Björn Hjaltason bloggar aftur eftir langt hlé

21.7.05

Um auglýsingar

Ég er í vinnunni að lesa moggann í dag (eða á morgun. fer eftir því hvernig maður á að líta á þetta). Á bls. 5 í viðskiptablaði moggans er heilsíðuauglýsing frá ríkissjónvarpinu þar sem þeir benda á að 9 af 10 vinsælustu þáttunum sem síndir voru í júní eru á blessaða Rúv. Gott hjá rúv segi ég og dettur ekki í hug að rengja þá. En af hverju í fjandanum eru þeir að auglýsa það í mogganum? Ef þú átt sjónvarp þá áttu að borga afnotagjöld til sjónvarpsins og því ætti þessi auglýsing ekki rétt á sér. Við nánari athugun sé ég að þessi auglýsing er bara til þess að auglýsa auglýsingatíma sjónvarpsins. Mér finnst þetta svo rangt að ég á ekki orð.