Björn Hjaltason bloggar aftur eftir langt hlé

28.10.05

Um daginn eftir

Jæja, kominn nýr dagur og þá meina ég nýr dagur, var að lesa það sem ég skrifaði í gær og sé hlutina einhvernveginn í allt öðru ljósi í dag. Fatalisminn farinn og ég er bara fullkomlega sáttur við gærdaginn. Furðulegt hvað hlutirnir breytast hratt. Þetta er eins og öfugir timburmenn þar sem þynnkan kemur á undan ölinu.

Um orðatiltæki

"Eins og flís við rass" ætti að þýða það sama og "pain in the ass" en gerir það ekki. Gæti verið að íslenska útgáfan innihaldi breysku lífsins? Að segja það hreint út að ef það er þess virði eða það passar þá verði það vont eða allavega óþægilegt? Ég fór að spá í þessu í leigubílnum á leiðinni heim. Ég verð bara að segja að það sem ég gerði í kvöld finnst mér óþægilegt, en ég held að það hafi verið það rétta í stöðunni. "It seemed like a good idea at the time" er mottó hjá mér en það gerir ekki erfiða hluti auðveldari. Það var "pain in the ass" en var það "eins og flís við rass"?
Það efast ég um.

hananú.

Kveðjur frá Eestii.

27.10.05

Um nýtt líf.

Systir mín eignaðist son í nótt. Húrra fyrir móður og barni (og föður, bróður, og systur þannig að enginn sé útundan). Ég er ekki búinn að fá myndir af barninu eða tölfræði (lengd og þyngd) ennþá, bíð spenntur.

26.10.05

Um hvalreka

Búinn að taka því rólega í dag. Lesa svolítið, setja upp skype hjá mér og almennt hafa það gott. Ég hef því ekkert að segja sem ekki er sagt hér í setningunum undan. Langar því að deila með ykkur gamalli sögu frá því að ég hafði hár.

Ég fór út að skemmta mér eitt föstudagskvöld í Reykjavík. Svo óvenjulega vildi til að ég hafði fyrir því áður en ég fór út að klæða mig upp, setja stinningarefni í hárið og leit satt að segja frábærlega út þó ég segi sjálfur frá. Ég var hinsvegar ekkert sérstaklega meðvitaður um hvað ég væri myndarlegur karlmaður og því ekkert óbærilega ágengur við kvenfólkið. Samt sem áður hitti ég unga stulku á öldurhúsi nokkru og fyrr en varir erum við komin heim til hennar. Fór þar vel á með okkur og við stunduðum saman aerobik, fimleika, lyftingar og stangarstökk frameftir morgni milli þess að ég hvíldi mig. Kemur þó að því að ég get ekki meira og við föllum í svefn. Tæplega á hádegi morgunin eftir vakna ég og sé þar að á stól við rúmið situr stúlkan unga og horfir á mig með kaffibolla í hönd. Brosir hún blítt til mín og réttir mér bollann sem ég þigg glaður. Á meðan ég sötra kaffið þá horfir hún á mig og segir: "Það var naumast hvalreki". Mig kítlar ekki mikið en ef mig kítlar einhverstaðar þá er það í egóinu þannig að ég brosi bara hlýtt til baka og rétti henni síðan bollann þegar ég er búinn með kaffið. Hún fer með bollann eitthvert fram og kemur síðan til baka og segir við mig: "Kemstu sjálfur út eða þarf að draga þig aftur út á háflóði?"

Þessa sögu sagði ég í þrítugsafmælinu hennar Berglindar Helgadóttur fyrir 2 árum þar sem ég var veislustjóri (ekki biðja mig um það því ég er ömurlegur veislustjóri nema þá kannski á árshátíð AA samtakanna eða annarstaðar þar sem er engin bolla). Þessi saga er annars í boði hvalsins sem var á BBC prime í kvöld því án hans hefði ég aldrei munað eftir henni.

Bestu kveðjur.

25.10.05

Um kítl

Þóra kítlaði mig og þessvegna ætti ég samkvæmt öllu að skrifa 7 mismunandi tilgangslaus svör við 7 tilgangslausar spurningar. Mig kítlar ekki mikið þannig að þetta verður eitthvað minna en það og ég ætla ekki að kítla neinn sem ég þekki vegna þess að það er ljótt að kítla.

Sjö hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:
  1. Hætta að reykja.
  2. Hætta að drekka.
  3. Vinna Mr. Universe keppnina.
  4. Verða forseti lýðveldisins.
  5. Fara á eftirlaun.
  6. Byrja aftur að reykja (þegar ég er kominn á eftirlaun).
  7. Byrja aftur að drekka (þegar ég er kominn á eftirlaun).
Sjö hlutir sem ég get:
  1. Komið við nefið á mér með tungunni.
  2. Skrifað svona lista.
  3. Komið síðastur í mark í marathon hlaupi.
  4. Borðað brauð.
  5. Reimað skóna mína.
  6. Stækkað.
  7. Talað um nánast hvað sem er þangað til að ég verð hás.
Sjö hlutir sem ég get ekki:
  1. Umgengist fólk sem fer í taugarnar á mér.
  2. Sent sms á minna en hálftíma.
  3. Komið fyrstur í mark í marathon hlaupi.
  4. Talað um skák eða lyftingar.
  5. Sett linsur í augun á mér.
  6. Átt nammi inni í skáp í meira en sólarhring.
  7. Viðurkennt að ég hafi rangt fyrir mér.

Sjö hlutir sem heilla mig við hitt kynið:

  1. Augu.
  2. Eyru.
  3. Munnur.
  4. Nef.
  5. Höfuð.
  6. Herðar.
  7. Hné og tær.
Sjö þekktar sem heilla:
  1. Norah Jones.
  2. Vigdís Finnbogadóttir.
  3. Meg Ryan.
  4. Andrea Gylfadóttir.
  5. Felicia Michaels (ekki beint þekkt en fyndnasta kona í heimi að mínu mati, dæmi hér)
  6. Nicole Kidman.
  7. Patti LaBelle.

Sjö orð/setningar sem ég segi oft:
  1. Ég.
  2. Fíbbl.
  3. Uhmm.
  4. Hæ.
  5. Og.
  6. Bjáni.
  7. Þar af leiðandi.

Sjö hlutir sem ég sé núna:

  1. Tölvuna mína.
  2. Kaffibollann minn.
  3. Eplagluggatjöld.
  4. Geisladisk.
  5. Gólfdúk.
  6. Bakpoka.
  7. Skrifborð.

Ég vona að þetta hafi verið jafn leiðinlegt að lesa og mér fannst að skrifa.

Kveðjur frá Eistlandi.

23.10.05

um stökkið mikla

Ég fór út á lífið með Öldu og norskum vini hennar, Henry, í kvöld. Stórskemmtilegt kvöld nem-a að ég labba heim til Öldu með þeim og sit og spjalla í dágóðantíma. Þegar ég er að koma þaðan út um 6 leitið þá er ennþá nótt og ég er að setja ipoddinn minn í eyrun þegar ég labba fyrir hornið og þessvegna frekar utanviðmig (meira en venjulega). Geltir ekki hundkvikindi á mig og ég stökk örugglega ca. 2,8m. upp í loftið ("uuuuud i luften" á finnsksænsku). Ég lít síðan niður og sé að það er púðluhundur sem er ca. 1,03 % af minni þyngd sem fékk mig til að setja heimsmet í hástökki. Langaði svo að sparka í helv... hundinn en þar sem ég er dýravinur og eigandi hundsins var þarna þá lét ég það ógert. Þess má geta að ef þið viljið sjá mynd af eiganda hundsins þá er ég ekki með neina en þetta er nánasta líki sem ég fann á netinu.