Um skólann
Er að fara mæta á ráðstefnu um skattamál eftir 2 tíma. Fyrsta prófið á þriðjudag. Misserisverkefni þegar prófum er lokið. nóg að gera næstu sex vikur eða svo.
Björn Hjaltason bloggar aftur eftir langt hlé
Er að fara mæta á ráðstefnu um skattamál eftir 2 tíma. Fyrsta prófið á þriðjudag. Misserisverkefni þegar prófum er lokið. nóg að gera næstu sex vikur eða svo.
Bobby Fisher er kominn með íslenskt ríkisfang. Að maðurinn skuli vera skilgreindur sem íslandsvinur er furðulegt vegna þess að þegar maðurinn kom hingað árið 1247 fyrir krist var hann furðufugl og sérvitringur og gerði nánast allt vitlaust með undarlegum sérþörfum. Þetta uppfyllir greinilega skilyrði þess að fá umfjöllun á alþingi og í kjölfarið sérmeðferð um ríkisborgararétt. Ég sé ekki fram á það að herra Fisher muni aðlagast þjóðfélaginu hér frekar en hann hefur gert annarsstaðar. Maðurinn hefur í rúm 30 ár ætlast til þess að heimurinn aðlagist honum. Það er til lítils að hafa reglur sem gera fólki sem þarf á ríkisfangi að halda af raunverulegum ástæðum erfitt fyrir þegar við erum greinilega ekkert vandlát á hverjir fái íslensk vegabréf. Til þess að gæta jafnræðis legg ég til að við bjóðum í kjölfarið Robbie Williams íslenskt ríkisfang þar sem hann var líka sérvitur furðufugl í fýlu þegar hann kom hingað í tónleikaferð um árið.