Björn Hjaltason bloggar aftur eftir langt hlé

3.7.04

Um frídaga

Ég er í viku fríi þessa dagana þannig að ég er ekki í vinnunni að láta mér leiðast og hugsa um bjánalega hluti til að skrifa á þessa síðu.

29.6.04

Um gáfur kvenna og heimsku karlmanna

Konur halda því oft fram að þær séu gáfaðri en karlmenn. Við hvað styðjast þessar staðhæfingar þeirra? Eftir að hafa spáð aðeins í þetta þá komst ég að þeirri niðurstöðu að þær hafa hreinlega rétt fyrir sér (allavega í kristnum þjóðfélögum). Biblían inniheldur neflilega nokkur svakalegustu dæmi um heimska og auðtrúa karlmenn sem ég hef heyrt um.

Dæmi 1, Leikþáttur: Jóspep, gettu hvað.
[Tjaldið fer upp þar sem María og Jósep standa á miðju sviðinu]

María: Jósep, gettu hvað?

Jósep: hvað?

María: ég er ólétt

Jósep: ÓLÉTT?

María [mjóróma og skömmustuleg]: já.

Jósep [hikandi]: hver... hvað... hvernig...uhhh... ég meina... ahhh... hvernig uhhh...
ég er allavega ekki valdur að því!

María: já, ég veit

Jósep: Er þetta satt? Heitkona mín að viðurkenna framhjáhald?

María: Uhh.. sko Jósep, það var sko enginn annar, í alvöru. [hóstar *hósthóst*]

Jósep [orðinn hoppandi vitlaus]: ENGINN ANNAR? [reitir hár sitt og finnur í leiðinni upp arfgengan blettaskalla]
Jósep: EKKI ÉG?, ENGINN ANNAR? ERT ÞÚ MARÍA AÐ REYNA AÐ SEGJA MÉR AÐ ÞÚ SÉRT EIN AF ÞESSUM HERMAFRÓDÍTUM?

María: uhh, sko, nei sko Jósep, lof mér að útskýra...

María: Það var guð

Jósep: Uhhhh

María: Jamm

Jósep: Óóó þannig

María: Hefur þú ekki eitthvað betra að gera en að vera angra óléttar konur?

Jósep [Hvumpinn]: júú

[Jósep gengur út af sviðinu, María bíður í nokkrar sekúndur og horfir á eftir honum til að fullvissa sig um að hann sé hvergi nærri, tekur síðan upp gsm síma og hringir.]

María: Hæ Solla, þú hafðir alveg rétt fyrir þér, hann steinlá fyrir þessu.

[Tjaldið kemur niður]

Dæmi 2:

Adam samþykkir að skipta á rifbeini og konu (án þess að skoða smáaletrið í samningnum þar sem stóð að eftir nokkur þúsund ár þá myndi hún hætta að elda og fá kosningarétt). Persónulega hefði ég allavega athugað hvort ég gæti fengið Playstation 2 og lífstíðarbirgðir af bjór.

Kaldhæðnin er samt sú að Adam er örugglega maðurinn sem heyrði þessa setningu: "Ekki núna, ég er á túr" of fann því líklega líka upp orðið "Fyrirtíðaspenna" til þess að geta lýst skapinu sem Eva var í þegar hún sagði "ekki núna ég er á túr" án þess að hún rifi hausinn af honum fyrir að segja "djöfull er hún brjáluð í skapinu" eða "þessi tími mánaðarins"

Konur, njótið tiltilsins. Þið eigið hann skilið.

Um kaldhæðni og biturð

Karlmenn og konur líta mismunandi augum á heiminn og nota þar af leiðandi mismunandi orð til þess að lýsa hlutum, aðstæðum og atburðum.

Ég hef löngum lýst sjálfum mér sem ókrýndum konungi íslenskrar kaldhæðni.

Þegar ég notaði þessa lýsingu á sjálfum mér í samtali við vinkonu mína sem þekkir mig ágætlega þá sagði hún við mig:

"Þú ert ekki kaldhæðinn , þú ert bara bitur"

Satt að segja þá var það alveg satt hjá henni, ég var bitur á því augnabliki og fjarri því að vera kaldhæðinn þar sem ég, sem sjaldan verð kjaftstopp, varð kjaftstopp. Bólaði ekkert á óskilgetinni en samt konunglegri kaldhæðni minni og hver verður ekki bitur af því að vera kallaður bitur?

28.6.04

Um landkönnun

Ég skal segja ykkur að ég er enginn geimfari í kvennamálum (never been where no man has gone before) en satt að segja þá finnst mér það allt í lagi. Mér finnst allt í lagi að fara á troðnar slóðir (svo framarlega að einhver sem ég þekki hafi ekki troðið hana áður því þá fæ ég bara að heyra ferðasöguna) því að þá er mun auðveldarara að eiga samskipti við innfædda og minna að svara fyrir að ferð lokinni. Ég minni á að indjánar Ameríku hríðféllu úr flensu eða einhverju eftir að Kólumbus og félagar komu í heimsókn og ég vil helst geta kennt einhverjum öðrum um slík atvik, td. sagt: "ertu viss um að það hafi ekki verið Kólumbus". Ég forðast hinsvegar fjölförnustu ferðamannastaðina (þeir sem eru kyrfilega merktir á landakortum) af því að þar snýst dæmið við og ég orðinn indjáni á Spáni og get hvort eð er fengið ferðasöguna með myndum í Séð og heyrt eða öðru ferðasögusafni eða þá bara á netinu.

Að lokum þá vil ég bara segja þrátt fyrir þennan pistil þá er ég ekki með neina helvítis flensu!

Um megrunarkúra

Jæja, þá er ég kominn á megrunarkúr. Satt að segja kominn á tvo megrunarkúra í einu. Mér fannst ekki nógur matur í einum.

27.6.04

Um óþolinmæði

Ég hef enga þolinmæði í umferðinni. Þegar ég sest undir stýri þá vil ég komast frá púnkti A til B án þess að SJÁ annan bíl.

Það má ekki keyra á traktorum eða vinnuvélum á megin umferðaræðum í Reykjavík á milli 7:30 og 9:00 og aftur á milli 15:30 og 17:00. Þetta sé ég á skiltum út um allan bæ.

HVAR ERU SKILTIN SEM BANNA GAMALT FÓLK UNDIR STÝRI?

Það er eitt af lögmálum heimsins að ef þú ert úti að keyra þá lendir þú á eftir bíl þar sem ökumaðurinn er jafn gamall og leyfilegur hámarkshraði á þeirri götu sem þú ert á.
Lof mér að útskýra, þegar þú ert að keyra í íbúðarhverfi þar sem hámarkshraðinn er 30km þá er ekkert vesen. Fyrir framan þig er þrítugur maður að bakka út úr stæði á 70 milljón kr. jeppa en hann er snöggur að því af því að honum er alveg sama um jeppann (sem hann á ekki sjálfur heldur er að leigja hjá glitni).
Um leið og þú kemur út á þjóðveg nr. 1 breytist þetta allt. Fyrst af öllu kemur þú að Mosfellsbæ (meira um mosó seinna þegar ég er búinn að ná valdi á reiði minni) og þegar þú er kominn þar í gegn og orðinn nógu pirraður á hringtorgum til að froðufella og rugga þér fram og aftur í bílstjórasætinu á meðan þú gefur í og brunar í átt að Borgarnesi (þar sem er líka 1 hringtorg) þá kemur þú óhjákvæmilega að þeim punkti þegar þú lendir á eftir gamalmenni sem þekkti Árna Magnússon og sagði honum einmitt allar þjóðsögurnar og er einmitt á leiðinni heim á Lada sport sem er dreginn af eldgömlu gigtveiku hrossi (sem þekkti Árna Magnússon og sagði honum allar súrari þjóðsögurnar).

Um framtíðarplön

Mér finnst eins og það hafi verið í gær sem ég ætlaði að verða lögga eða slökkviliðsmaður þegar ég yrði stór.



Hmmmmm. Þegar ég hugsa um það þá var það víst í gær.

Um forsetakosningar

Var að skoða úrslit forsetakosninganna í Reykjavík Suður.

Ástþór Magnússon 481 atkvæði eða 1,8%
auðir seðlar voru 6.521 eða 24,8%

Sorglegt þegar 13,5 sinnum fleiri vilja engan forseta frekar en þig.

Baldur Ágústsson sakaði Ólaf Ragnar um daginn um tengsl við Norðurljós og því væri hann ekki óháður stjórnmála eða viðskiptaöflum. Mér finnst samt að hann hefði líka getað bent á tengsl Ástþórs við tómatsósuframleiðendur, en þarf að níðast meir á Ástþóri (sjá að ofan)?

PS: Gat ekki annað en litið upp úr blogginu mínu og kíkt á þáttinn sem var á Discovery þegar ég heyrði þessa setningu:
"I didn't set out to make Jihad ninja rats"
Gætir þú staðist það?