Björn Hjaltason bloggar aftur eftir langt hlé

15.9.05

Um ferð til Ríga

Við Alda skelltum okkur til Ríga (Lettlandi) um síðustu helgi. 6 tíma rútuferð takk fyrir. Engar lestir því að samkvæmt 50 ára gamalli hefð þá liggja allir teinar til Moskvu. Ríga var flott, höfðum bara 1,5 sólarhring þannig að það var hlaupið í skoðunarferð um bæinn, farið að versla, farið í klippingu (ættlaði að fá mér hanakamb en guggnaði á því). Allavega þá var þetta voða gaman, voða flott, góður matur, betri drykkir. Alda keypti líka einhvern biksvartan elixír (45% alc.) sem á að hressa, bæta og kæta(c) en ég á eftir að prófa hann.

Myndir úr ferðinni hér.