Vaknaði snemma í gær morgun og drattaðist niður í bæ. Erasmus fólkið hafði skipulagt dagsferð fyrir okkur skiptinemana til
Paldiski. Vorum komin þangað um hádegi og fórum að labba um þennan eyðilega bæ sem gæti verið hvar sem er í heiminum svosem. Lítið að sjá þarna, þetta er bær sem hefur þjónað herstöð þarna í mörg hundruð ár, fyrst fyrir svía, síðar rússa, þjóðverja og loks sovétveldið. Eftir að Eistland lýsti yfir sjálfstæði forðaði Rússneski herinn sér fljótlega og Eistar hafa ekki lagt sig mikið fram við að breyta 50 ára hersetu og kúgun í túristadæmi. Frekar leiðinleg ferð bara en það var svo mikið labb að það voru allir dauð þreyttir þegar þessu lauk um 7 leitið. Líkamsrækt var það sem ég fékk út úr þessu.
Hvað um það okkur Öldu var boðið að fara út á lífið með finnunum um kvöldið en Alda var svo uppgefin að hún lagði ekki í það. Ég, Annukka, Kaja og Laura fórum því aðeins út í gærkvöldi. Ekki mikið að segja frá svo sem þar sem drykkjan náði aldrei þeim hæðum að skandalar sköpuðust. Finnsku stelpurnar töluðu hinsvegar heilmikla finnsku sín á milli af einhverjum ástæðu þannig að ég fékk þær til að kenna mér að segja "nákvæmlega" á finnsku þannig að ég gæti valið góð augnablik í samtölum þeirra til að vera sammála. Kom heim óvenju snemma miðað við að hafa verið úti með finnum.
Hvað varðar klukkið þá leiðist mér svona klukk þannig að ég ætla að gera þetta öðruvísi. Ég ætla að gefa fleiri "staðreyndir" um sjálfan mig, sumar sannar og sumar uppspuni, það er ykkar að ákveða hvað er hvað.
- Ég er fleiri sentimetrar en kíló.
- Ég er með tannlæknafóbíu.
- Ég dansa ekki, stelpur dansa.
- Ég veit betur en þú.
- Mér leiðist að skrifa svona lista.
- Mér þykir bjór góður.
- Uppáhaldsliturinn minn er glær.
- Ég er ekki með hár á bakinu.
- Mér leiðast bækur sem enda ekki.
- Uppáhaldsbókin mín er "Depill fer í bað" (buslubók)
- 80's tónlist er æði.
- Ég drekk ekkert sterkara en vodka.
- Ég er með ofnæmi fyrir leiðinlegu fólki.
- Ég synti eitt sinn í kringum Þingvallavatn.
- Ég ætla að bjóða mig fram til forseta.
- Mjallhvít er ástæða þess að ég borða ekki epli.
- Mér finnst assnalegt að "8" á hlið sé stærri tala en "9" á hlið.
- Ég hata smáralindina og kringluna.
- Ég er er ekki flughræddur, ég er fallhræddur.
Ég hef áhveðið að klukka engan þar sem það er sennilega búið að klukka ALLA íslendinga núna.