Björn Hjaltason bloggar aftur eftir langt hlé

21.3.07

Um pikköplínur

Gleðilegt ár allir landsmenn. Ég ætlaði bara að láta alla vita að ég var að skora á sjálfan mig að nota eftirfarandi pikköplínur.

  1. Hæ, Ég heiti Björn en vinir mínir kalla mig helgarpabba.
  2. Hæ, Ég heiti Björn og varð að tala við þig því manneskja með þitt útlit hlýtur að vera með magnaðan persónuleika.

4 Comments:

Blogger Jónína Ingibjörg said...

Það var mikið að eitthvað kom frá þér!
Þegar ég var ung og sæt (nú er ég bara sæt) þá var ekki til neitt sem hét pikköplínur. Þá reyndu strákar við mann eða reyndu að fá mann með sér heim. Við þær tilfæringar notuðu menn vitanlega ýmis brögð og setningar sem falla vitanlega undir þetta hugtak.
Ég var afar ung að árum á þvælingi niðri í bæ á rúntinum sem lá frá Hallærisplaninu (nú Ingólfstorg), meðfram Austurvelli, um Pósthússtræti að Austurstræti og endaði aftur á Hallærisplaninu. Þar sem ég var stödd hjá Landsímahúsinu (nú Nasa) vatt sér að mér ungur drengur og vildi fá mig til fylgilags við sig. Til að sannfæra mig um ágæti sitt sagðist hann hafa fengið hettusótt og væri því ófrjór. Ég geri ráð fyrir að eina fyrirstaðan sem honum datt í hug til að ná í mig hafi verið sú að ég væri hrædd um að ég yrði ólétt. Það er skemmst frá því að segja að ég beit ekki á agnið.

4:43 f.h.

 
Blogger Jónína Ingibjörg said...

Er það ekki annars hastarlegt að athugasemdin mín skuli vera þónokkuð lengri en bloggið þitt?

4:43 f.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Já það er spurning hvort þetta virki, en ég verð nú að segja jónína að hann vantaði ekki kjarkinn þennan gaur...

1:46 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

mwahahahaha!

og yfir á wordpress með þig, blogspot er sooooo out... :D

4:28 f.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home