Um fyrsta nóvember.
Það hlaut að koma að því, það er komin ný vika. Kvefið frá því í síðustu viku er farið að megni, ég er byrjaður í nýjum fögum í skólanum (þannig að ég hef eitthvað að gera aftur) og tölvupósturinn minn er fullur af myndum af systursyni mínum og systkynum hans. Góð byrjun á nóvember.
