Um ritgerðir.
Ég er að bagsast við að skrifa 3. ritgerðina sem ég þarf að skila fyrir 18:00 þann 20. des. 2 eru búnar (á bara eftir að prenta). Er dauð feginn að hafa ekki trassað þetta neitt að ráði. Þarf samt að skrifa u.þ.b 20 bls. í viðbót á næstu 6 dögum þannig að það er lítill tími til þess að spá í jólin enn sem komið er. Síðan þegar það er búið þá tekur fjórða stóra ritgerðin við sem er lokaverkefni í "international law" áfanganum. Ég hef frjálst val um hvað ég skrifa sem er ekkert betra, á ennþá eftir að finna mér efni og þarf að vera búinn að tilkynna kennaranum efnið og fá það samþykkt fyrir 21. des. Það þýðir ekkert hangs, ætla reyndar eitthvað út úr húsi í kvöld en stefnan er samt tekin á hóflegt útstáelsi þannig að ég geti verið sestur við skrif klukkan 8 í fyrramálið.
Er líka farið að styttast í jólafrí og ég var að skoða flugmiðann minn og samkvæmt honum er ég væntanlegur á klakann klukkan 22:20 á Þorláksmessu. Jól í faðmi fjölskyldunnar er skylda og nýjársgleði með vinum er nauðsyn. 3. janúar er það svo Eistland aftur í 2 vikur til þess að fara í próf ofl..
Hasar framundan.
Kv,
Bjössi
