Björn Hjaltason bloggar aftur eftir langt hlé

6.9.05

Um minnkandi snilli mína í rúminu.

Ég veit ekki hvað er í gangi. Kannski er það fertugsaldurinn, kannski er það loftslagið. Hver sem ástæðan er þá hefur færni mín í rúminu minnkað all svakalega við flutninginn til Eistlands. Ég er ekki sáttur við þetta. Ég var kominn með það orðspor að vera svakalegur í rúminu. Timburhús nötruðu heilu og hálfu næturnar af mínum völdum. Ég gat borið mig saman við þá bestu í heiminum, skipti ekki neinu máli hvar, hvenær eða í hvaða stellingu. Ég hafði það mikla yfirburði að ég talaði um getu mína í 3. persónu: "Björn Hjaltason hefur gert svefn að listgrein". En ég sef ekki jafn vel í Eistlandi. Ég kenni hitanum um.

5.9.05

Um DM baar og eistnesku

Búið að vera ágætis drykkja á manni hérna fyrstu dagana, allavega yfir meðaltali held ég. Fór td. á DM Baar í gær sem er bar tileinkaður Depeche Mode, DM dvd í gangi, DM lög á blasti, úrklippur úr blöðum sem hafa fjallað um DM á borðum. Frekar spes en þrusu kósí kjallarastaður. Fór síðan í tíma til professor Mullerson áðan og komst að því að hann talar eistnesku nógu vel til að kenna á eistnesku. Héldu allir að hann væri að fara kenna á ensku en það var sko ekki, maðurinn er eitthvað tungumálasjení held ég. Frekar fúlt fyrir mig. Þarf að finna út hvort öll vikan verður á þessu furðulega máli. Ég hef grun um að það séu bara 3 samhljóðar í pokanum í eistnesku scrabble spili. Meira seinna.

Head aega

4.9.05

Um Eistland

Ég er kominn til Eistlands og hef það bara fínt. Skil ekki eistnesku né rússnesku en það aftrar mér ekki því að ég kann hið alþjóðlega tungumál "látbragðsleikur", þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig er að kaupa áfyllingu fyrir GSM símann sinn þannig. Ég bý á nemendagörðum tækniháskólans í Tallinn (Tallinna Tehnikaülikooli) þar sem University Nord er ekki með sína eigin nemendagarða (skiljanlegt þar sem nánast allir nemendurnir búa fyrir í Tallinn). Ég er einn í 2ja manna herbergi (2 rúm), með sameiginlegri eldhúsaðstöðu, sturtu og salerni með herberginu við hliðina þar sem enginn býr enn sem komið er. Internettengingin á herberginu er líka mjög þægileg. Annars er þetta svona hálfgert hótel þessi bygging sem ég bý í. Hér er rekið Academic Hostel sem þýðir að það er alltaf einhver í móttökunni, ég get td. skilið eftir lykilinn (sem er á stórri óþægilegri lyklakippu) þegar ég fer út að skokka. Það er rétt ég hef farið út að skokka hérna. Fann það út að það sem helst hefur hindrað mig í því (fyrir utan leti) er íslenskt veðurfar. Hér virðist veðurspáin standast, það var spáð þurru veðri og léttskýjuðu alla vikuna og viti menn, léttskýjað og 18-20 stiga hiti alla vikuna. Það fríkar mig samt svolítið út að innifalið í leigunni er að það kemur manneskja og skiptir um rúmföt og skúrar einu sinni í viku. Ég fíla reyndar skúringa partinn en að einhver skuli koma og skipta á rúminu mínu og búa um mig finnst mér krípí.
Á mánudaginn fer ég að hlusta á gestafyrirlesara frá Kings College University of London. Maðurinn heitir Rein Mullerson og ef einhver vill kaupa bækur eftir hann þá má nálgast þær hér.
Prófessor Múllerson ætlar að fjalla eitthvað um Alþjóðlegan rétt í vikunni. En þar sem sérsvið hans er mestmegnir á sviði mannréttinda og stríðsmála þá er sennilega ekki mikið um alþjóða viðskiptarétt í þessu (viðskiptaréttur er nú einusinni 90% af kúrsavalinu mínu hérna).
Eitthvað vesen var á íbúðamálinu hennar Öldu þegar við komum þannig að hún eyddi fyrstu nóttinni á hóteli (radison sas, hvað annað) en á þriðjudag hafði ennþá ekki ræst úr húsnæðismálunum hennar þannig að hún flutti inn til mín. Það var svosem fínt að hafa félagskap og Alda má eiga það að hún er í efri kantinum á einkunnaskalanum mínum yfir gæði félagskapar (má geta þess að ég spáði mikið í því hvort að það væru eitt eða 2 "s" í félagskap en ákvað að hafa bara eitt og bera fyrir mig mínimalismastafsetningarstefnu ef það er rangt). Við fórum svo út að borða á miðvikudagskvöld og ætluðum síðan að finna hvar íbúðin sem hún átti að fá að skoða á fimmtudaginn væri. Röltum um miðbæinn (sem er í 20 mínútna strætófjarlægð frá campus hjá mér) og finnum okkur veitingastað sem leit þokkalega út. Fengum okkur súpu í forrétt, ég með rússneska kjötsúpu en Alda með sjáfarréttasúpu, síðan aðalréttur þar sem ég fékk mér nautakjöt í bjórsósu borið fram í heilu brauði en Alda einhverjar fylltar kjúklingabringur með þessu pöntuðum við flösku af prýðilegu rauðvíni (Torres minnir mig) og síðan ostaköku að hætti innfæddra til þess að klára máltíðina. Reikningurinn fyrir okkur 2 var upp á 500 eesti krooni sem er 2500 ísl. kr. Maður gæti átt það til að fara út að borða oftar sem námsmaður í eistlandi en maður gerði sem námsmaður á íslandi. Bjórinn á dýrari börum niðri í bæ kostar 150 ísk. kostar 100 kall á hverfisbarnum hjá mér og kostar 45 kall úti í kjörbúð (skilagjald á glerinu innifalið). Nóg um verðlagið, þegar við Alda erum búin að borða áttum við okkur á því að veitingastaðurinn sem við sitjum á er í sömu götu og íbúðin sem hún er að fara skoða, ekki nóg með það, þegar við komum út þá sjáum við að hún er í húsinu á móti. Stutt leit það. Alda leigði síðan þessa íbúð á fimmtudag og flutti aftur út frá mér. Núna er ég sem sagt aftur með laust rúm í herberginu. Vill einhver kíkja í heimsókn, út að borða og bjór?, frítt húsnæði (fyrir heimsækjarann þar að segja, ég borga víst leigu hérna)

Head aega.