Um þvottavélar
Ég, eins og flestallir aðrir þvæ þvottinn minn í þar til gerðri vél. Þvottavélar eru undarlegar ófreskjur. Það er mín trú að þvottavélar gangi ekki fyrir rafmagni eins og almennt virðist viðurkennt. Þvottavélar ganga fyrir sokkum og það er tilgangur þeirra á jörð að stuðla að aðskilnaði sokka. Ef þú lætur sokkapar í þvottavél er bókað að þú færð 1 stakan sokk að þvotti loknum, en hann er hreinn og það er aðalmálið. Þess vegna læt ég alltaf alla staka sokka sem ég á með öllum þvotti í þeirri von að vélin éti einn þeirra og láti pörin vera.
