Björn Hjaltason bloggar aftur eftir langt hlé

25.9.05

Um mömmustrákinn

Mamma er að koma í heimsókn eftir 4 tíma. Lífgjafi minn ætlar sem sagt aðeins að kíkja á litla barnið sitt og skoða Tallinn í leiðinni. Verður gaman að hitta hana þar sem ég hef nánast bara heyrt í henni í gegnum email síðasta mánuðinn. Verður eitthvað minna partístand á mér næstu 3 daga fyrir vikið (nema hún vilji vera með). Hvað um það ég er búinn að taka aðeins til hérna heima og þarf bara að finna út hvernig best er að komast út á flugvöll að sækja Múttu. Fyrsta mál á dagskrá er hinsvegar að skella sér á kaffihús til þess að fá sér einn rótsterkan, biksvartan og seigfljótandi bolla í ljósi þess hvað ég svaf lítið í nótt.