Björn Hjaltason bloggar aftur eftir langt hlé

12.12.05

Um brjálæði.

Er á fullu að lesa og skrifa þessa dagana. 3 ritgerðir sem ég þarf að skila 2o. des. Búinn með eina og hálfa og vika til stefnu, fluggírinn fundinn og því lítið um skrif hér undanfarið. Var duglegur í gær óvænt útstáelsi á fimmtudag, föstudag og laugardag. Kvaddi Annu á fimmtudaginn, hitti Ellu á föstudagskvöldinu og ætlaði út með Öldu á laugardaginn en það var ekkert stuð eftir í orkutanknum hjá okkur þannig að hún fór snemma heim og ég fór heim þegar hætti að rigna (var í rússkinnsjakka sem ég vildi ekki eyðileggja). Dagurinn tekinn snemma á sunnudaginn og lært eins og lífið lægi við. Svaf síðan illa í nótt og byrjaði daginn verr. Eldsnemma, illa sofinn og úrillur, ennþá hálf sofandi ruglaðist ég á tannkremi og sjampói. Heilræði frá Bjössa frænda nr 1. EKKI BURSTA TENNURNAR MEÐ MENTHOLSJAMPÓI. Dagurinn lagaðist síðan þegar fór að líða á hann og gekk bara ágætlega þegar ég lít til baka.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hehe, hver hefur ekki sett eitthvað undarlegt á tannburstann sinn? Rak-krem og handsápa hér, hvorugt fór að vísu uppí mig en ég þurfti að endurnýja burstann.

1:55 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

HAHAHA...ungur maður sem ég kannast við, er ekki sleipari í enskunni en það að hann tók brúnkukrem móður sinnar (Tan-creme) og skellti því í skoltinn á sér!!!!
Svo varð hann bara reiður þegar við hlógum að honum?????
Skil ekki svona...........
Hlakka til að sjá þig um jólin!!

6:03 e.h.

 
Blogger Þóra said...

Hittirðu ekki á munninn á þér þegar þú burstar tennurnar Siggi minn? Svakalega ertu flinkur í fínhreyfingunum manni ;)

Bjössi! Menthol sjampó? ....ouch

2:01 f.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home