Björn Hjaltason bloggar aftur eftir langt hlé

13.11.05

Um viðkvæmni.

Fór út að skemmta mér á fimmtudagskvöld, sem er ekkert nýtt svosem nema að því leiti að ég þekkti greinilega ekki mín takmörk og vaknaði draug þunnur, með kúlu á enninu á föstudagsmorgunn til þess að fara í tíma. Það sem ég drakk hefði venjulega ekki haft þessi svakalegu áhrif á mig en ég var greinilega frekar viðkvæmur á fimmtudag. Kúlan á enninu vakti mig líka til umhugsunar af því að ég mundi ekkert sérstaklega eftir því að hafa verið í nautaati við rauðan vegg. Eftir töluverða umhugsun rámaði mig í að hafa rekið höfuðið í á leiðinni út af salerni á skemmtistað. Ég var allavega það ölvaður að það hafði engin áhrif á mig þegar það gerðist. Föstudagurinn varð hinsvegar töluvert undarlegur fyrir vikið. Þunnur og með höfuð sem var minna hnöttótt en venjulega hélt ég minn enskufyrirlestur, sat tíma í International private law og komst heim í rúmið 6 tímum síðar. Vaknaði til þess að athuga hvort að skemmtunarfélögum mínum hefði ekki vegnað betur en mér (sem var) og fór síðan aftur að sofa.
Dagurinn tekinn snemma á laugardag eftir góðan svefn, lært, lesið og skrifað í 8 tíma. Að því loknu var haldið niður í bæ þar sem kaffi var sötrað, matur var étinn og bjór drukkinn. Fann það út á öðrum bjór að ég var ennþá "viðkvæmur" og hélt síðan áfram í kaffinu. Snemma í bælið að því loknu. Dagurinn í dag er eins og afrit af gærdeginum, vaknað snemma og lært og núna er ég kominn með ógeð á skruddunni sem ég var að lesa þannig að ég er lagstur í blogg og sjónvarpsgláp þar sem ég finn engann sem vill fá sér kaffibolla og spjall.

1 Comments:

Blogger Björn Hjaltason said...

Kem heim á Þorláksmessu.

8:34 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home