Um óskhyggju.
Var duglegur að læra í dag. Vaknaði snemma, lærði fram að hádegi. Fékk mér léttan hádegismat og hélt síðan áfram að læra þangað til að ég var búinn að fá mig fullsaddan af leiðinlegu lögfræði/félagsfræði bókinni sem ég var að lesa. Lagðist síðan í sjónvarpsgláp og internetráp. Skellti mér síðan út í pízzu og bíó með Öldu. Það er alltaf leiðinlegt þegar myndir valda manni vonbrigðum en "The legend of Zorro" var einfaldlega mjög vond mynd. Jú það var hægt að hlægja að henni stundum en ég eyddi stórum hluta myndarinnar í það að óska mér að ég væri að gera eitthvað annað, eins og td. að bíða eftir strætó, bursta tennurnar eða skrifa jólakortin fyrir næstu 3 ár. Undarlegt hvað þessir hlutir geta verið skemmtilegir úr fjarlægð þegar manni leiðist.

3 Comments:
Dúddemæ! getur maður átt von á því að fá svona auglýsingar inn á commentin hjá sér?!
Heimur versnandi fer!
En haltu áfram að blogga, ég hef ekki svo mikið að lesa þegar ég nenni ekki að læra.....
12:58 e.h.
Gott að heyra að þú ert að skemmta þér þarna úti :) :) ... leiðinlegt að heyra að þú hafir ekki verið búinn að láta mig vita af þessu fína fína bloggi þínu.....
11:41 f.h.
Afhverju ertu í fýlu við mig?
12:38 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home