Björn Hjaltason bloggar aftur eftir langt hlé

26.11.05

Um mig.

Kallinn ekki af baki dottinn, ó nei. Heyrði í frumbyggjasnótinni sem ég bloggaði um síðast í fyrradag, þar sem hún sagði að ég væri ágætis náungi og allt það en ég ég væri samt betur útlítandi í augum ölóðrar manneskju en edrú. Hún sagðist annars ætla að hringja í mig ef hún færi ekki að hitta foreldra sína um helgina sem hún stóð við og þónokkuð betur því að hún hringdi í mig í kvöld og sagðist vera á leiðinni út úr bænum.
Annars er það að frétta að ég fór út á lífið í kvöld, keypti teikavei pízzu á leiðinni í bæinn og fór með til Öldu því að ég, hún og Annu ætluðum út að skemmta okkur. Þegar ég er að bíða eftir pízzunni hringdi skólafélagi minn (sem að ég hef aldrei hitt) í mig og spurði hvort að ég ég vildi hitta hann og aðra vini hans, hann hafði fengið númerið mitt hjá alþjóðafulltrúanum í skólanum (sem að hefur mjög miklar áhyggjur af skemmtanalífi skiptinemanna einhverra hluta vegna en ég er samt ekki kínverji og hef ekki verið í miklum vandræðum með skemmtun hérna). Ég ákvað að skella mér, át pízzuna með Öldu og kyssti stúlkurnar bless (þar sem að þær nánast ráku mig út). Fór síðan á VS café þar sem ég hitti Tönis, Markus , Siimi og Haiki ásamt fleira fólki sem ég man ekki nafnið á í augnablikinu. Sátum að sumbli á VS café þangað til að það lokaði, á þeim tíma hitti ég 2 frumbyggjastúlkur (sem í ljósi fyrri reynslu ég fékk númerið hjá). Fórum síðan á stað þar sem einn vinsælasta hljómsveit Eista "Daniel Badar and the Sun" var að spila en vorum of sein þangað en komumst ekki inn (fyrsta íslenska raðarreynsla mín í Eistlandi). Stúlkurnar stungu þvínæst upp á því að við færum á Club X (borið fram "klúb iks") sem var jánkað af öllum, þetta voru jú allt eistar þannig að ég treysti þeim til að þekkja bæinn sinn. Klúb iks reyndist vera háklassa strippstaður með dýrasta bjór sem ég hef keypt í Eistaríki (samt helmingi ódýrari en á Íslandi). Stúlkurnar skemmtu sér samt ógurlega og ég líka, ekki út af strippinu heldur félagsskapnum, Eistnesku strákarnir reyndust alveg ágætir, og stúlkurnar stórskemmtilegar. Af "klúb iks" var síðan haldið heim, margir úr hópnum búa nálægt mér þannig að þetta var fyrsti sameiginlegi leigubíllinn sem ég tek heim í allan vetur.

Stórskemmtilegt kvöld, vonandi skemmtuð þið ykkur álíka.

kv,
Bjössi

1 Comments:

Blogger Jónína Ingibjörg said...

Alltaf gaman að lesa skrifin þín. Mætti bara vera meira.
Gat ekki betur heyrt í gærkveldi og fram á nótt en að fólk hér á Bifröst skemmti sér konunglega í próflokajammi. Ég náttúrulega nennti ekki á djammið. Elli kerling alveg að fara með mann.Enda svo sem ekki próflok hjá mér.
Hlakka til að lesa meira um frumbyggjarannsóknir þínar.

4:06 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home