Björn Hjaltason bloggar aftur eftir langt hlé

23.10.05

um stökkið mikla

Ég fór út á lífið með Öldu og norskum vini hennar, Henry, í kvöld. Stórskemmtilegt kvöld nem-a að ég labba heim til Öldu með þeim og sit og spjalla í dágóðantíma. Þegar ég er að koma þaðan út um 6 leitið þá er ennþá nótt og ég er að setja ipoddinn minn í eyrun þegar ég labba fyrir hornið og þessvegna frekar utanviðmig (meira en venjulega). Geltir ekki hundkvikindi á mig og ég stökk örugglega ca. 2,8m. upp í loftið ("uuuuud i luften" á finnsksænsku). Ég lít síðan niður og sé að það er púðluhundur sem er ca. 1,03 % af minni þyngd sem fékk mig til að setja heimsmet í hástökki. Langaði svo að sparka í helv... hundinn en þar sem ég er dýravinur og eigandi hundsins var þarna þá lét ég það ógert. Þess má geta að ef þið viljið sjá mynd af eiganda hundsins þá er ég ekki með neina en þetta er nánasta líki sem ég fann á netinu.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hahahaha
brilliant, ég sé þetts svoooo fyrir mér.
Frábært blogg hjá þér btw :)

BG.

11:24 f.h.

 
Blogger Þóra said...

Ohhhh ég þoli ekki svona púðluhunda. Þetta eru ofbeldishneigð lítil kvikindi sem ætti að útrýma.....

9:44 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home