Björn Hjaltason bloggar aftur eftir langt hlé

13.10.05

Um spretthlaup aldraðra

Hæ. Ég er ennþá á lífi, svosem fullt af hlutum til þess að segja frá ég bara nenni ekki að skrifa neitt í augnablikinu þannig að þetta verður bara um ímynd sem er föst í hausnum á mér síðan ég sá þetta um daginn.

Ég var í strætó á leiðinni niður í bæ um daginn. Þegar strætóinn var að renna í hlað á stoppustöð einni sá ég gamlan mann með göngugrind á leiðinni í átt að stoppustöðinni, hann var örugglega 5 metra í burtu. Gamli maðurinn var að horfa niður og vanda sig við að labba og sér fyrst strætóinn þegar strætóinn er kominn, stopp og búinn að opna hurðirnar. Gamla manninum bregður greinilega við þetta alltsaman, 4,5m frá strætó og strætó að fara leggja af stað aftur. Þannig að gamli maðurinn tekur á rás. Eins ljótt og er að segja þetta var ég næstum búinn að skella uppúr því að gamli maðurinn hreyfðist ekkert hraðar áfram. Svipurinn og tilþrifin voru hinsvegar slík að það fór ekki framhjá neinum að þessi maður var að hlaupa á eftir strætó. Strætóstjóri tók allavega eftir því af því að við biðum í rúma mínútu á meðan gamli maðurinn skokkaði síðastra metrannn.

Ég veit núna hvernig Jón Arnar tugþrautarkappi mun líta út eftir 300 ár.

3 Comments:

Blogger Jónína Ingibjörg said...

HAHAHA, ég sé þetta alveg ljóslifandi fyrir mér.
Gaman að fylgjast með ykkur þarna úti.
Kveðja,
Jónína Ingibjörg

2:43 f.h.

 
Blogger Þóra said...

Ertu að fá einhvern panikk yfir því hvað ég sé dugleg að kommenta? Þú verður þá bara að fara að kommenta oftar. Hvernig væri að kommenta hjá mér við tækifæri.
Bjössi er búinn að kommenta mun oftar hjá mér en þú. Gengur það? ;)

3:35 e.h.

 
Blogger Björn Hjaltason said...

Bannað að rífast í commentum á blogginu mínu, verðið að finna annað blogg til þess. Frekar vil ég fá útlendinga sem spamma "Nice page, I found it by accident, blablabla... but anyway you wouldn't happen to need a penis enlarger?" í comment.

6:57 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home