Björn Hjaltason bloggar aftur eftir langt hlé

25.10.05

Um kítl

Þóra kítlaði mig og þessvegna ætti ég samkvæmt öllu að skrifa 7 mismunandi tilgangslaus svör við 7 tilgangslausar spurningar. Mig kítlar ekki mikið þannig að þetta verður eitthvað minna en það og ég ætla ekki að kítla neinn sem ég þekki vegna þess að það er ljótt að kítla.

Sjö hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:
  1. Hætta að reykja.
  2. Hætta að drekka.
  3. Vinna Mr. Universe keppnina.
  4. Verða forseti lýðveldisins.
  5. Fara á eftirlaun.
  6. Byrja aftur að reykja (þegar ég er kominn á eftirlaun).
  7. Byrja aftur að drekka (þegar ég er kominn á eftirlaun).
Sjö hlutir sem ég get:
  1. Komið við nefið á mér með tungunni.
  2. Skrifað svona lista.
  3. Komið síðastur í mark í marathon hlaupi.
  4. Borðað brauð.
  5. Reimað skóna mína.
  6. Stækkað.
  7. Talað um nánast hvað sem er þangað til að ég verð hás.
Sjö hlutir sem ég get ekki:
  1. Umgengist fólk sem fer í taugarnar á mér.
  2. Sent sms á minna en hálftíma.
  3. Komið fyrstur í mark í marathon hlaupi.
  4. Talað um skák eða lyftingar.
  5. Sett linsur í augun á mér.
  6. Átt nammi inni í skáp í meira en sólarhring.
  7. Viðurkennt að ég hafi rangt fyrir mér.

Sjö hlutir sem heilla mig við hitt kynið:

  1. Augu.
  2. Eyru.
  3. Munnur.
  4. Nef.
  5. Höfuð.
  6. Herðar.
  7. Hné og tær.
Sjö þekktar sem heilla:
  1. Norah Jones.
  2. Vigdís Finnbogadóttir.
  3. Meg Ryan.
  4. Andrea Gylfadóttir.
  5. Felicia Michaels (ekki beint þekkt en fyndnasta kona í heimi að mínu mati, dæmi hér)
  6. Nicole Kidman.
  7. Patti LaBelle.

Sjö orð/setningar sem ég segi oft:
  1. Ég.
  2. Fíbbl.
  3. Uhmm.
  4. Hæ.
  5. Og.
  6. Bjáni.
  7. Þar af leiðandi.

Sjö hlutir sem ég sé núna:

  1. Tölvuna mína.
  2. Kaffibollann minn.
  3. Eplagluggatjöld.
  4. Geisladisk.
  5. Gólfdúk.
  6. Bakpoka.
  7. Skrifborð.

Ég vona að þetta hafi verið jafn leiðinlegt að lesa og mér fannst að skrifa.

Kveðjur frá Eistlandi.

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Það athyglisverðasta við þennan lestur eru eplagluggatjöldin...
ég hélt ekki að þú værir svona epla típa :)

7:06 e.h.

 
Blogger Jónína Ingibjörg said...

Ég saknaði tveggja orða sem eru einkennandi fyrir þig en það eru orðin; sælar/ir og prýðilegt.
Annars fannst mér bara gaman að lesa þetta en ég er náttúrulega stórskrýtin.........

12:58 f.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Ég saknaði orðanna: "nei, málið er sko það að..."

12:31 e.h.

 
Blogger Björn Hjaltason said...

Ég var einmitt að reyna muna málkækina mína og mundi þá ómögulega.

4:10 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home