Björn Hjaltason bloggar aftur eftir langt hlé

7.10.05

Um ensku, kínverja og lélegar ástarsögur.

Var í enskutíma í morgun. Ég og kínverjarnir vorum í stöðuprófi í síðustu viku og þegar kennarinn kemur inn í tímann í dag labbar hún upp að mér og segir "We have a problem!". Mér datt fyrst í hug að ég hefði einhvernveginn svindlað á stöðuprófinu og væri þessvegna í vandræðum. Ég fann það hinsvegar út að kínverjunum hafi ekki gengið mjög vel á prófinu en prófið mitt hafi verið "perfect". Mér var því tjáð að nærveru minnar væri ekki óskað í tímum en til þess að fá einingarnar ætti ég að fara á bókasafnið í hverri viku, finna lögfræðibók á ensku, lesa hana og kynna efnið og lögfræðiorðin þá sérstaklega munnlega fyrir kínverjunum sem væru að fara læra lögfræði um leið og þeir yrðu spjallfærir á alvöru tungumáli. Ég fer sáttur út og upp á bókasafn og næ mér þar í spennusöguna "The law of the sea" sem fjallar á æsilegann hátt um ást, hatur, svik og ofbeldi hjá aðalsögupersónunum, Fr. Efnahagslögsögu og Hr. Útlendum Skipstjóra. Hvað um það, þegar ég er kominn í strætó fór ég að hugsa um hvað ég væri að gera og hvað ætlast væri til af mér og ég endaði á því að spyrja sjálfan mig eftirfarandi spurningu: "Var verið að gera mig að aðstoðarkennara?"

4 Comments:

Blogger Þóra said...

Jú ég held þú sért orðinn aðstoðarkennari. Til hamingju með það. Færðu eitthvað borgað eða ertu bara að þessu af því að þér finnst þetta svona rosalega skemmtilegt?

4:27 e.h.

 
Blogger Björn Hjaltason said...

Ég fæ ekkert borgað fyrir þetta. Ég áttaði mig ekkert á hverju ég var að játa fyrr en ég var á leiðinni heim, var bara sov feginn að þurfa ekki að sitja þessa tíma. En ég þarf víst samt að mæta á föstudögum og segja frá bókunum í rauðulagaseríunni til þess að fá þessar blessuðu einingar.

6:48 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Þetta er frekar fyndið allt saman. Meira ruglið hérna í Eistlandi.

7:25 e.h.

 
Blogger Þóra said...

Góða skemmtun ;-)

2:40 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home