Björn Hjaltason bloggar aftur eftir langt hlé

25.9.05

Um mömmustrákinn

Mamma er að koma í heimsókn eftir 4 tíma. Lífgjafi minn ætlar sem sagt aðeins að kíkja á litla barnið sitt og skoða Tallinn í leiðinni. Verður gaman að hitta hana þar sem ég hef nánast bara heyrt í henni í gegnum email síðasta mánuðinn. Verður eitthvað minna partístand á mér næstu 3 daga fyrir vikið (nema hún vilji vera með). Hvað um það ég er búinn að taka aðeins til hérna heima og þarf bara að finna út hvernig best er að komast út á flugvöll að sækja Múttu. Fyrsta mál á dagskrá er hinsvegar að skella sér á kaffihús til þess að fá sér einn rótsterkan, biksvartan og seigfljótandi bolla í ljósi þess hvað ég svaf lítið í nótt.

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.

12:05 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Á ekkert að fara að svara KLUKKINU maður...
Hvaða bull er þetta annars... Hot hair... þú ert náttúrulega flottastur svona snoðaður...

3:34 f.h.

 
Blogger Miss Marsibil said...

Vá, aldrei hefur bloggsíðan mín vakið áhuga hjá einhverjum sem talar ekki íslensku... er kannski verið að "fokkast" í þér Bjössi ?:)
Svaraðu svo klukkinu og við værum öll til í að sjá þig snoðaðan hehehe kveðjur
Iða

6:08 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

hei hvaða klukki??
ég er óð í að koma til ykkar en þið þurfið að segja mér allt um það hvernig og hvar og hvenær...
nína óða

3:42 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home