Um minnkandi snilli mína í rúminu.
Ég veit ekki hvað er í gangi. Kannski er það fertugsaldurinn, kannski er það loftslagið. Hver sem ástæðan er þá hefur færni mín í rúminu minnkað all svakalega við flutninginn til Eistlands. Ég er ekki sáttur við þetta. Ég var kominn með það orðspor að vera svakalegur í rúminu. Timburhús nötruðu heilu og hálfu næturnar af mínum völdum. Ég gat borið mig saman við þá bestu í heiminum, skipti ekki neinu máli hvar, hvenær eða í hvaða stellingu. Ég hafði það mikla yfirburði að ég talaði um getu mína í 3. persónu: "Björn Hjaltason hefur gert svefn að listgrein". En ég sef ekki jafn vel í Eistlandi. Ég kenni hitanum um.

1 Comments:
já ér er með gsm síma (+372) 56309654 (eistneskt frelsi) ég er líka í ágætu msn og email sambandi þegar ég er heima (bjornh@bifrost.is)
1:07 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home