Björn Hjaltason bloggar aftur eftir langt hlé

22.9.05

Um fimmtudagsmorgun

Alda hringdi í mig upp úr 4 í gær og spurði mig hvort ég væri á leiðinni niður í bæ. Þar sem ég hafði ekkert annað að gera þá skellti ég mér niður í bæ eftir kvöldmat og kíkti í heimsókn til Öldu. Klukkutíma trúnó og einni rauðvínsflösku síðar skellum við okkur út á lífið. Við byrjum á að fara á St. Patricks Pubi (einn af 4 st. patricks pöbbum á sama ferkílómetranum) þar sem Alda sendir barnaskólastúlkunni Piret, sem á að passa að Öldu líði vel í Estóníu fyrir hönd skólans, sms til að spyrja hvar Bonnie & Clyde skemmtistaðurinn sé. Ég hringi í Annu til þess að tjékka hvort hún væri til í að kíkja út á lífið eða bara gera hana öfundsjúka ef hún kæmist ekki. Annu komst ekki og Alda fékk sms frá barninu Piret sem segir að Bonnie & Clyde sé inni á hotel Olympia. Við þangað eins og vindurinn komum rétt fyrir 11 og ódýrt inn á milli 10 og 11. Ég borga okkur inn en okkur er ekki hleypt inn án þess að fara úr yfirhöfnum. Alda var ekki búin að gera ráð fyrir að vera kápulaus um kvöldið og bar fyrir sig stílbrot og tískulögguna til þess að komast ill í kápunni en allt kom fyrir ekki. Ég fékk því endurgreitt og við fórum inn á English Pub (frumleg nöfn á stöðum í Eistlandi) sem var inn um hurðina við hliðina á ca. 3 metra í burtu þar sem við og yfirhafnirnar okkar vorum fyllilega velkomin. Dýr bjór fyrir mig (23o kall isk) og gin og tónik fyrir dömuna. Enn meira trúnó þar þangað til Alda fer að púðra sig ,fiðrilda og máta sig kápulausa í speglinum á salerninu. Alda ákveður að hún geti verið kápulaus án þess að lenda í tískulöggunni og vill fara á Bonnie & Clyde. Ég hef auðvitað engar mótbárur við það enda felur fíni rúskinnsjakkinn minn bara karlmannlega one-packinn minn. Yfirhafnirnar fara því í fatahengið og við förum inn á Bonnie & Clyde þar sem ljósin blikka rauð, gul og græn eins og umferðarljós á fastforward. Meiri bjór, meiri gin og tonik, meira trúnó. Síðan meiri bjór, meiri gin og tónik bara tvöfaldur í þetta sinn. Alda farin að vera all hrottalega skökk og ég búinn að fá nóg áfengi fyrir kvöldið. Alda reyndi sitt besta að fá Dj.Umtsumtsumts til þess að spila eitthvað með Duran til þess að fá mig til að dansa, á endanum sættist ég við að dansa við Depeche Mode því að þeir eru cool og Dj.Umtsumtsumts átti ekkert með Duran. Ég dansa náttúrulega eins og guð. Fótahreyfingar eins og Indiana Jones í snákabæli og handahreyfingar eins og ég hafi misst þær í vinnuslysi. Flottasti riverdance EVER. Við Alda áttum dansgólfið enda staðurinn hálf tómur.
Þegar við förum þarf Alda að fara aftur á salernið þannig að ég næ í yfirhafnirnar heittelskuðu og bíð eins og sönnum herra sæmir með kápu í annari og kvenmannsveski í hinni. Alda kemur út af salerninu og stendur ekki í lappirnar. Allir þessir gin og tonic greinilega farið að virka í einu. Klukkan ekki nema tæplega 3 þannig að við ákveðum að fá okkur nætursnarl eins og sönnum íslendingum sæmir. Sökum skorts á bæjarins beztu, hlölla og nonna þá förum við hálfa Tallinn í leigubíl í gegnum hverfi þar sem húsin virðast hafa verið byggð skökk og eigendurnir ákveðið að sýna lífsgleði sína með því að mála þau steypugrá. Endum á stað sem ég man ekki nafnið á en kýs að kalla "búlluna úti í rassgati" klukkan rúmlega 3 en ennþá opið. Inni á staðnum eru þjónustustúlka, og 2 öryggisverðir frá Falk security sem áttu greinilega að passa að enginn stæli gráa litnum af hverfinu. Alda reyndi að heilla annan þeirra upp úr skónum með: "Æ'm from Æslaaand" sem hefði fengið barn til þess að gefa henni sleikjóinn sinn. Falk maðurinn þó fullkomlega húmorssnauður og tjáir Öldu að honum líki ekki ókunnugir með því að gera ekki neitt né segja neitt. Ég verð að viðurkenna það að Eistar eru álíka félagslyndir og Norðurkóreumenn að eðlisfari þannig að það kom mér ekkert á óvart að hr. Falk skyldi ákveða að telja rispurnar á barborðinu frekar en að tala við Öldu.
Ég sannfæri Öldu um að trufla hr. Falk ekki meira við risputalningar og tylla sér við eitt af borðum staðarins og spyr hana hvað hvað hún vilji. Alda svarar með súrrealíska svarinu: "Ég vil það sem þú heldur að ég vilji" sem aðeins einhver sem er of fullur til að hugsa myndi segja. Ég panta ristað brauð með eggi, skinku og osti handa Öldu, hvítlauksbrauð og dýfu handa mér. Nokkrum mínútum síðar bæti ég við skammti af frönskum þar sem franskar eru víst: "Æíslear".
Furðu góður matur á þessari búllu, þrátt fyrir félagsskap hr. Falk & hr. Falk og að hverfið sem hún er í skyldi líta eins út í svarthvítu og í lit.
Annar leigubíll heim til Öldu, á leiðinni þangað stoppar leigubílstjórinn bílinn og fer út á meðan 1km. löng lest fer yfir lestarteina fyrir framan á lúsahraða. Ódýri leigubíllinn reynist því vera dýrasti leigubíllinn í Tallinn þökk sé fraktlestinni. Eftir að hafa komið Öldu heim þá dröslast ég til að taka sjálfur leigubíl heim og finn loksins bíl frá ódýru leigubílastöðinni (checkered cabs). Var að koma heim fyrir hálftíma, klukkan er hálf 6. Skóli eftir 7,5 klukkutíma.

Dæmigert miðvikudagskvöld?

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Sæll Bjössi :)
Þetta hefur verið snilldarkvöld hjá ykkur Eistlandsförunum! En skemmtilega skrifað með eindæmum, skellti nokkrum sinnum uppúr við lesturinn!!
Hafðu það gott,
kveðja, Ragga

4:01 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Ég segi það enn og aftur, þú ert snillingur.

6:28 e.h.

 
Blogger Miss Marsibil said...

Hehehehehe... snilldin ein :) Gaman að lesa hjá þér, liggur við að maður geri ekkert annað þessa dagana en að lesa blog!!
Hafðu það gott kallinn!

1:45 f.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

hahahaha,, þú ert bara snillingur, Þessar frásagnir þínar bjarga alveg deginum, hafðu það sem allra best í útlandinu

Kv. Heiða

2:52 f.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Snilldarskrif!!!....maður veltist bara um af hlátri við lesturinn, en ein pæling.....ef þú missir hendurnar í vinnuslysi, hvernig geturðu þá sveiflað þeim????
Indiana Jónsson var rosaflottur í snákagryfjunni!!!
ps. Haltu endilega áfram að skrifa þegar þú kemur heim af fylleríinu, ekki þegar skynsemin er komin daginn eftir...hehehe

4:21 f.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home