Um ferð til Ríga
Við Alda skelltum okkur til Ríga (Lettlandi) um síðustu helgi. 6 tíma rútuferð takk fyrir. Engar lestir því að samkvæmt 50 ára gamalli hefð þá liggja allir teinar til Moskvu. Ríga var flott, höfðum bara 1,5 sólarhring þannig að það var hlaupið í skoðunarferð um bæinn, farið að versla, farið í klippingu (ættlaði að fá mér hanakamb en guggnaði á því). Allavega þá var þetta voða gaman, voða flott, góður matur, betri drykkir. Alda keypti líka einhvern biksvartan elixír (45% alc.) sem á að hressa, bæta og kæta(c) en ég á eftir að prófa hann.
Myndir úr ferðinni hér.

6 Comments:
Hver er Alda?
Þóra Marteins
7:26 e.h.
Alda er vinkona mín frá bifröst sem er líka skiptinemi hérna í Tallinn (við annan skóla)
9:49 e.h.
blessaður kæri fyrrum sambýlingur, bara að kasta á þig kveðju.... hafðu það gott úti ezk!
-hlé
5:07 f.h.
Alltaf gott að hafa einhvern nálægt sem talar íslensku. Þá er hægt að tala hátt og illa um allt og alla :-)
Þóra Marteins
4:28 e.h.
Hvað meinarðu? Ég tala aldrei illa um fólk. Bara asna sem að eiga það skilið :-)
7:09 e.h.
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
7:10 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home