Björn Hjaltason bloggar aftur eftir langt hlé

20.9.05

Um ófarir

Fór út að skemmta mér með alvöru drykkjufólki síðasta laugardagskvöld. Ég er að tala um 2 finnskar stelpur. Annuka er skiptinemi við Tallinn University (Ríkisháskólann) og Kaia vinkona hennar far í heimsókn frá finnlandi enda bara stutt bátsferð frá Helsinki. Alda ætlaði að koma út á lífið með okkur en hún var eitthvað slöpp þannig að ég slæptist einn í leit að Koida 113 íbúð 4 þar sem Annuka býr. Ég villist auðvitað á leiðinni þangað þökk sé leiðbeiningunum sem hún gaf um "stystu" leiðina sem byggðist á undirgöngum, trjálundum og bílastæðum auk grárra og gulra húsa. Það sem ég fann út um hverfið hennar var að annað hvert hús er grátt á meðan hitt er gult, það eru fullt af undirgöngum og bílastæðum og trjálundir eru ekki eins sjaldgæfir og á Íslandi. Það endar með því að ég hringi í Annu og hún fer út að leita að mér, ég enda á því að segja henni að fara heim því ég fari bara lengri leiðina frá strætóstöðinni þar sem var kort sem sýndi hvar Koidu er.
Þegar ég kem heim til hennar þá afsakar hún það að íbúðin sem hún leigir sé frekar ber. Og ber hún var því innanstokksmunir voru: legubekkur, 2 stólar, 2 glös og einn bolli og gluggakista sem notuð var sem tölvuborð.
Ég kem til hennar um 8 og til 10 eyðum við tímanum í að klára allt hvítvínið í húsinu, allann ciderinn (5% áfengur) og lækka í 2 lítra vodkaflöskunni sem vinkonan kom með frá Finnlandi til öryggis ef áfengi skyldi vera bannað í evrópusambandinu á meðan hún var á bátnum á milli.
Vel drukkin förum við niður í bæ og förum á "Ville Valla" þar sem ég fæ einhvern drykk sem bragðast eins og norskir brjóstdropar blandað með grappa og sótthreinsunarspritti. Þetta er víst einhver Tallínsk vígsluathöfn (svipað eins og "hádújúlækæsland" á klakanum).
Af Ville Valla fórum við síðan á Guitar Safari þar sem við hlustuðum á Eistneskt "rokkband" flytja cover af frægum rokkstandördum. Annu og Kaia fara út á dansgólfið þar sem ólin á veskinu hennar Annu slitnar þannig að óteljandi perlur sem þræddar voru á ólina detta í gólfið og skoppa með látum sem yfirgnæfa rokkið. Þær koma síðan skömmustulegar aftur og setjast og spjalla við mig. Ég fer að gera grín af því hvernig Ítalir tala með höndunum og eftirherman mín endar á því að mér tekst að brjóta kúppulinn á lampanum fyrir ofan borðið og stara á puttann minn sprauta blóði á borðið. Brjálaður starfsmaður kemur hlaupandi með plastað blað þar sem innréttingar staðarins eru verðlagðar á einskonar "matseðli". Glerið kostar 500 krooni og sköllótti fýldi starfsmaðurinn fylgir mér á barinn til þess að borga skemmdirnar. Á meðan skammast Annu og Kaia yfir því að menn séu rukkaðir fyrir slys því að þau gerast nú og Kaia sannar það með því að hvolfa úr bjórnum sínum á borðið og innréttingarnar. Annu hellir sér síðan yfir starfsmenn staðarins til þess að spyrja hvort lampaskermum fylgi ekki plástur. Hún fær birgðir af plástri sem hún heimtar að setja á mig (og setur á fleiri putta en blæðir úr, bara til öryggis).
Af Guitar Safari er farið á Molly Malones þar sem allir verða piss fullir ef þeir voru ekki fyrir. Við hittum einhverja Breta í helgarferð frá Plymouth, Wayne, Scott og égmanekkihvaðannheitir. Annuka nánast hösslar Wayne á meðan Scott reynir að útskýra fyrir mér afhverju Björk er cool og Kaia er orðin það full að hún er hætt að átta sig á að enginn talar finnsku þarna nema Annu sem er komin á trúnó með Wayne. Á endanum sofnar Scott sitjandi á barstólnum og lítur út eins og páfagaukur á priki, Kaia nær að segja mér að hún vilji fara heim á brotinni ensku og við drögum Annu út eftir að Wayne hafði náð númerinu hennar. Ég fer heim til mín og þær fara heim til sín.
Á sunnudaginn er ég frekar þunnur og ætla að taka strætó niður í bæ til þess að fara í bíó með Öldu. Strætóferðin sem venjulega er hálftími tekur rúman klukkutíma út af einhverri umferðarteppu fyrir framan Pugeot umboðið þar sem syrgendur allstaðar út af einhverrju Rallíslysi. Bíóið var samt geðveikt flott. Númeruð sæti þar sem bilið milli sæta var nánast þannig að ég gæti rétt úr fótunum. Charlie and the Chocolate factory var fín, samt fyndið að vera með talið á Ensku og texta með á 2 tungumálum (rússnesku & eistnesku). Þegar ég kem heim um kvöldið er ég farinn að skjálfa og fer beina leið í rúmið með einhverja pest. Var fyrst að fara á fætur eftir hádegi í dag.
Ekki mín helgi, en það var samt mjög gaman.

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þú ert snillingur. Gleymdir samt að segja frá frábæru McDonalds heimsókninni, þar sem að fólk ruddist fram fyrir þig og þú fjúríus. Bara svona til að toppa þennan ólukku-sólarhring þinn.

3:12 f.h.

 
Blogger Þóra said...

Vá en rosaleg helgi. Hvað er 500 krooni annars mikið

2:06 e.h.

 
Blogger Björn Hjaltason said...

500 krooni er ca 2500 kall

9:16 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Helvíti fínt að fylgjast með ykkur "eistunum", jafnvel þó að annað ykkar standi bara undir þeirri merkingu í orðsins fyllstu merkingu....hlakka til að lesa meira!

4:38 f.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home