Björn Hjaltason bloggar aftur eftir langt hlé

22.8.05

Um sumarlok og það sem koma skal

Síðasta vaktin í vinnunni er á fimmtudagskvöld. Eistland á mánudaginn 29. ágúst. Var reyndar að finna það út að önnin í skólanum byrjar ekki fyrr en fyrstu vikuna í október en ég mun sitja einhverja gestafyrirlestra og leggja mig fram við að læra eins mikið og ég get í eistnesku þangað til. Hafði líka hugsað mér að ferðast aðeins um landið í september, jafnvel kíkja til Pétursborgar. Í október byrjar skólinn á fullu með kennslu fram að jólum. Próf í byrjun janúar og síðan allt búið þann 14. jan. Það er því óvíst hvort maður komist heim á klakann um jólin. Býst satt að segja ekki við því.
Systir mín á von á sínu 3ja barni í miðjum október þannig að ég mun ekki sjá barnið (nema á myndum) fyrstu mánuðina. Annars hefur systir mín eitthvað lag á því að skipuleggja barneignir sínar þannig að ég sé í útlöndum þegar börnin koma í heiminn.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Vá þú ert bara að fara....
synd með systur þína. Alveg ,,tæmuðu" Steina og Rósa sýnar barnseignir þannig að ég væri ákkúrat á landinu þegar þær ættu. Það var voða ljúft :-)

Sjáumst
Þóra Marteins

7:51 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home