Um blogg og skartgripi
Ég gleymdi að ég væri bloggari. Ég biðst velvirðingar á því og mun reyna að muna hvað ég er í framtíðinni.
Annars var ég að spá í að fara í samstarf við Baug með skartgripaverslun í Bónus. Alveg búinn að sjá auglýsingarnar fyrir mér:
"Karlmenn, 2 fyrir 1 á konudaginn, kaupið fyrir bæði konuna og viðhaldið án þess að það sjáist á vísareikningnum. -Bónus"
"Diamonds are forever, en þurfa þeir virkilega að endast það lengi? - Bónus"
"Er hún ólétt? Þú færð trúlofunarhringinn fyrir konuna sem þú elskar ekki í Bónus!"
"Bónus! Þegar þú ert ekki alveg viss."
"Sagði hún: Ekkert kynlíf fyrir hjónaband? -Bónus!, ódýrari en helgarferð til amsterdam"
"Bónus! þegar þér fannst ekki að þú hafir gert neitt sem þú þurfir að afsaka."

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home