Björn Hjaltason bloggar aftur eftir langt hlé

9.11.04

Um hryðjuverk.

Jæja, þá er búið að framlengja ógnarstjórn George W. Bush um önnur 4 ár. Ég segi ógnarstjórn þar sem skilgreiningin á hryðjuverkum er að skapa almennan glundroða og hræðslu. George Bush hefur byggt alla sína stjórn á því að hræða Bandaríkjamenn við umheiminum, og nú er komin sú staða að Bandaríkjamenn eru hræddir við útlendinga og allir í heiminum eru skíthræddir við bandaríkin.
Vinir bandaríkjanna í dag eru nátengdir í menningu og þar sem þeir tala sama tungumál í Bretlandi og Kanada (flestir þar allavega). Frakkar gagnrýndu Bandaríkjamenn fyrir innrásina í Írak og einhverjir Bandaríkjamenn fannst það ótækt að þjóðarréttur þeirra væru franskar eftir það og vildu breyta nafninu í frelsiskartöflur í staðinn. Ég er á því að Bretar eigi að gagnrýna Bush og co. harkalega þannig að þeir móðgist og hætti að tala ensku. Þeir gætu tekið upp á því að tala spænsku (þar sem Bush hefur nú þegar betri tök á því tungumáli en ensku) og ég verð að segja að þá gætu þeir sennilega talað við fleiri í heiminum.

Kaldhæðnin er helst sú í þessu öllu að Bandaríkjamönnum var þokkalega sama um hryðjuverk á meðan þau beindust ekki að þeim sjálfum. Spánverjar og Bretar hafa barist við hryðjuverk í áratugi og ég man ekki eftir því að Bandaríkjamenn hafi kippt sér neitt upp við að fjármagna IRA á norður írlandi og hunsa ETA á spáni. Hvar voru líka bandaríkjamenn þegar hryðjuverk voru framin á Íslandi, þeir kipptu sér ekki upp við að 2 menn með bandarískt ríkisfang sökktu hvalbátum í Reykjavíkurhöfn, þeir réðust ekki inn í Canada til að leita að Paul Watson, þeir skilgreindu ekki Sea Shepheard sem hryðjuverkasamtök. Ég er ekki að segja að þeir hafi ekki haft rétt fyrir sér í Afghanistan, og ekki að segja að bin Laden sé fyrirmyndarborgari, og ekki að segja að árasirnar á turnana 9/11/2002 hafi verið réttlætanlegar. Ég er bara að segja að hlutirnir eru ekki svona einfaldir. Er ég hryðjuverkamaður af því að ég er ekki sammála G. W. Bush? Eru franskar verri af því að þær heita franskar? Er Paul Watson lúði? Eru hvalir rétthærri en arabar? Eru palestínumenn verri enn Ísraelar? Svaraðu þessu.

Sama hver niðurstaða þín er þá er það bara þín skoðun og þú þarft rök til að sannfæra aðra um að hún sé rétt. Þín persóna, þinn uppruni, þín trúarbrögð, þín réttlætiskennd hefur ekkert um réttmæti niðurstöðunnar að segja. Rök rúla feitt.

Hafðu þetta Döbbeljúú Búss.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home