Björn Hjaltason bloggar aftur eftir langt hlé

8.7.04

Um vinnudaga

Ég er kominn aftur í vinnuna og þar af leiðandi að skrifa eitthvað til að setja eitthvað á þetta litla vefmusteri sem ég reisti mér til ævarandi dýrðar.
Vinna jafngildir leiðindum, það hefur alltaf verið þannig og ef ég ætti að brjóta einhverja óskrifaða reglu sem íslendingar hafa í hávegum og læra eitthvað af henni (fortíðinni) þá held ég að vinna muni alltaf jafngilda leiðindum. Auðvitað gerist af og til eitthvað áhugavert hérna en vinna sem næturvörður jafngildir því að maður vill helst ekki sjá neitt áhugavert í vinnunni nema þá eitthvað sniðugt á discovery um húðsjúkdóma í höfrungum eða eitthvað "who went to jail for what" trivia clip á VH1 með tilheyrandi vídeói sem minnir mann á að 80's var kannski ekki svo æðislegt þrátt fyrir dúran, aha og Limahl. Ef eitthvað gerist í vinnunni hjá mér þá þarf ég neflilega að standa upp og fara að athuga hvað er í gangi og hugsanlega gera eitthvað í því. Vinnan mín verður þannig að vinnu, enginn tími fyrir blogg, enginn tími fyrir að athuga hvort einhver sem ég þekki hefur bloggað síðan ég athugaði síðuna síðast fyrir korteri (jamm gott fólk, setjið upp teljara og ég skal hjálpa ykkur að slá batman.is við í heimsóknum) þannig að ég prísa mig sælan ef ég fæ að hafa discovery, VH1 og netið í friði (knock on wood).

Ég þarf að fara að læra að skrifa stuttar og markvissar setningar því ef þið teljið setningarnar sem eru komnar hingaðtil þá er ég bara að búinn með 6, með þessari. Eins og sönnum íslendingi sæmir þá ætla ég að leysa annað af þessum vandamálum á þann hátt að hitt vandamálið margfaldast. Ég ætla það sem eftir er af þessari færslu að stytta setningarnar með því að setja bara punkt þar sem mér sýnist og með því gera. allt þeim mun ómarkvissara og. ruglingslegra ***Innskot: Elton John .og Kiki Dee að syngja "Don't go. breaking my heart" á VH1, sönnun á 80's dótinu sem ég. nefndi áðan***

Meira á morgun (eða á eftir ef það verður ekkert gott í matinn á BBC Food)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home