Björn Hjaltason bloggar aftur eftir langt hlé

16.7.04

Um sólskin

Mér finnst undarlegt að fara niður í bæ þegar sólin skín því það eru alltaf þúsundir ungra kvenna með barnavagna þar. Það mætti halda að það væri einhver múgsöfnun hjá þeim því fjöldinn er svo mikill og þessar konur með barnavagnana haga sér eins og franskir bændur þegar þær leggja vögnunum þversum á gangstéttum og loka gönguleiðum á meðan þær eru að segja einhverri mjólkandi vinkonu sinni frá sex mánaða skoðuninni. Franskir bændur loka leiðum með því leggja bílum sínum þvert á götur og sturta kálhausum á hraðbrautir til þess að mótmæla lágu verði sem þeir fá fyrir geitakjöt og úlfaldamjólk. Ég vil bara vita hverju barnavagnafólkið er að mótmæla af því að það hefur aldrei komið fram.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home